Smelluþjálfun
Tungumál milli manns og hests



Hesturinn Heimir prjónar. Kennt það á örfáum mínutum með smelluþjálfun, rúmri viku áður en hann kom fram á kynningu á landsmótinu um smelluþjálfun.

Tungumál milli manns og hests

Hesturinn er greint og námsfúst dýr sem vill vinna með manninum. Með smelluþjálfun notum við greind hans til að skapa okkar eigin draumahest - hest sem hlustar vel og vill leggja sig fram. Auðvelt er að læra smelluþjálfun og ekki þarf að kúvelta öllu sem maður hefur lært til að nota hana. Þjálfunin byggist á því að smellt er í góm og verðlaunað þegar hesturinn framkvæmir þá hegðun sem óskað var eftir. Þegar hesturinn hefur skilið að smellan þýði að hann hafi framkvæmt rétt hefur komist á þægilegur og skýr samskiptamáti millli manns og hests. Þegar hesturinn er orðinn leikinn í smelluþjálfun má kenna honum alls konar skemmtilegar kúnstir eins og að leggjast, spænska sporið, sækja hluti og svo framvegis. Einnig hjálpar smelluþjálfun við kennslu almennra fimiæfinga og svo við mótun hegðunar í reiðtúrunum, eins og til dæmis við gangsetningu. Þegar smellan kemur skilur hesturinn að hegun hans var rétt og hann sækist í að framkvæma hana til að fá meira góðgæti. Þannig er hægt að móta hegðun hans á skýran og auðveldan hátt. Í þessari grein verður farið yfir einn af grunnþáttum smelluþjálfunar og þann mikilvægasta en það er að kenna hestinum til að snerta með snoppunni. Að fá hestinn til að snerta er upphafið að ótrúlega áhugaverðri þjálfun sem getur orðið lykillinn að betri og skýrari samskiptum við hestinn.


Jákvæð styrking

Smelluþjálfun byggist eingöngu á jákvæðri styrkingu og tungumálið er því aðeins ,,já þetta var rétt hjá þér'' milli manns og hests. Ef hestinum er refsað fyrir að skilja ekki eða vera ekki nógu fljótur að framkalla ákveðna hegðun mun hann ekki vilja leika smelluleikinn. Hann mun ekki treysta lengur á hinar einföldu reglur þjálfunarinnar þar sem hann veit ekki hvenær honum gæti verið refsað. Hesturinn veit ekki hvaða hegðun þjálfaranum þykir ákjósanleg fyrr en honum er sagt það. Með því að einbeita sér algerlega að því styrkja rétta hegðun en hunsa ranga má fá hestinn til að vilja sækjast í að sýna rétta hegðun og minnka hina þar sem hann fær ekki styrkingu fyrir hana. Hesturinn fer að einbeita sér að því hvað hann þarf að gera til að heyra smell og fá góðgætið - þjálfarinn eignast hest sem hugsar.


Skemmtileg þjálfun

Það sem er skemmtilegast við þessa þjálfun er að hesturinn veit ekki einu sinni að hann er í kennslustund. Það er skiptir í raun ekki máli hvað hesturinn er beðinn um því honum finnst þetta allt vera skemmtilegur leikur og þjálfaranum fer fljótt að finnast það líka. Hesturinn veit að þjálfarinn hefur eitthvað sem honum langar í og verk hans er að finna út hvað hann þarf að gera til að fá það. Þegar hann sýnir hegðunina smellir þjálfarinn um leið í góm og hesturinn fær sín verðlaun. Í höndunum höfum við hest sem skilur að smellan þýðir ,,þetta var rétt hjá þér'' og með því að kenna honum það höfum við opnað leið að mörgum möguleikum. Hestinum finnst hann loksins hafa náð stjórninni á manneskjunni sinni en þjálfarinn veit að hann er að móta hegðun hans þannig að báðir eru sáttir. Þessi aðferð er í raun tungumál milli manns og hests sem báðir skilja og hægt er að byggja alla tamningu og þjálfun á þessum samskiptamáta. Svo dæmi sé tekið var tryppi aðeins rúmlega tíu mínutur að læra óaðfinnanlegan framfótarsnúning um heilan hring, eitt skref í einu og krossaði vel vegna þess að það kunni smelluleikinn. Tryppið lærði einnig óaðfinnanlegan afturfótasnúning jafn hratt daginn eftir og allt byggðist þetta á smelluþjálfun - trippið vildi leggja sig fram og heyra manneskjuna sína smella. Í huga tryppisins var þetta aðeins skemmtilegur leikur en þjálfarinn komst hratt og vel áfram með grundvallarþátt fimiþjálfunar.

Verða ekki brauðhestar

Sumir hafa haft áhyggjur af því að hestarnir breytist í freka brauðhesta þegar þeim er gefið við hverja smellu en svo er ekki ef reglunum er fylgt. Ef hestinum er eingöngu gefið góðgæti þegar hann heyrir smellu þá lærir hann að góðgætið kemur aðeins þá og því þarf að hætta að lauma að honum molum. Fari hesturinn að hanga í vösum þjálfarans sem gerist stundum í byrjun skal víkja frá hestinum, neikvæða hegðun skal hunsa. Um leið og hesturinn hættir og stendur kyrr skal smella í góm og gefa honum rólega smá góðgæti. Þannig er honum sagt hvað sé æskilegt og hvað ekki. Þjálfarinn mótar þannig hegðun hans en hesturinn heldur að hann hafi loks náð stjórninni og þykir nú heldur gaman að því - og þannig plata báðir hvorn annan.